Sá síðustu mínúturnar í þessum leik og hrósa Chicago liðinu fyrir frábæran varnarleik undir lokin.
Annars held ég að NBA-deildin hafi unnið aðeins til baka álit almennings eftir lock-outið í haust og byrjun tímabils, magnaður jóladagur og fullt af flottum leikjum þó Celtics hafi tapað fyrir Knicks.
Annars sakna ég þess enn og aftur að við skulum ekki fá að sjá meira af Euroleague bolta eða háskólabolta hér á Íslandi. Vissulega hægt að sjá þetta á netinu en ég er alla vega ekki ennþá búinn að fá sama fíling við að horfa á boltann í tölvunni og á sjónvarpsskjánum, en það kemur kannski.
Því miður stenst mitt skemmtilega lið Arsenal, stóru liðunum ekki snúning í alvöru leikjum. Til þess vantar meiri vigt í liðið. Það vantar nýjan markvörð fyrir það fyrsta, það er í raun skammarlegt að Arsenal skuli hafa markvörð sem er ekki einu sinni nálægt því að komast á bekkinn í sínu landsliði. Í öðru lagi vantar alvöru miðherja og það fer að verða pirrandi hvað Wenger ætlar að þráast lengi við.
Þetta sérstaka ætti að vera það að kaupa svona menn.
Ef hinir nýju eigendur Moggans halda að blaðið rísi úr rekstrarlegri öskustó sinni, með því að ráða Davíð Oddsson sem ritstjóra, eru þeir ekki aðeins haldnir ranghugmyndum um samfélagið sem þeir lifa í, heldur eru þeir líka haldnir sjálfseyðinarhvöt af verstu sort.
Það er alveg á hreinu að Morgunblaðinu verður sagt upp frá þeirri stundu sem tilkynnt verður að Davíð Oddsson verði ráðinn ritstjóri.
Veltu sér ekki svo lítið upp úr þessu í fyrra.
En gaman að hafa þetta fyrir augunum engu að síður.
Loksins er komið að því að Síminn hefji innreið sína í dreifbýli Skagafjarðar - eða ætti ég frekar að segja að hann uppfæri þjónustustig sitt sem hefur verið til háborinnar skammar um langa tíð. ISDN-línur hafa verið í boði fyrir þá sem ná ekki ADSL-tengingum og hafa símareikningar til sveita verið himinháir.
Gagnaveita Skagafjarðar hefur nýverið samið við Akrahrepp um að leggja ljósleiðara inn á alla bæi í hreppnum. Að auki hefur Gagnaveitan boðið upp á þráðlausar nettengingar í dreifbýli Skagafjarðar með góðum árangri.
Það sorglega við stöðu Icesave-málsins í dag er það að okkur virðist skorta leiðtoga til þess að leiða okkur að eins farsælli lausn í þessu máli, bæði gagnvart öðrum þjóðum og líka inn á við í þinginu.
Við erum leiðtogalaus þjóð, við höfum mállausan forsætisráðherra sem ekki virðist treysta sér í að hitta aðra þjóðhöfðingja og ræða þessi mál milliliðalaust og á þinginu ríkir upplausnarástand.
Það er líka dapurt að hugsa til þess að líklega værum við ekkert betur sett með eitthvað sem gæti kallast þjóðstjórn.
Hér er hver höndin upp á móti annarri. Krísustjórnmál eru ekki okkar te. Hvað þá góðærisstjórnmál eins og við erum rækilega minnt á þessa dagana.
Við tökum kolrangar ákvarðanir dag eftir dag. Hvað varð t.d. til þess að það var talið farsælla að ráða sendiherra, uppgjafar stjórnmálamann, flokksbróður fjármálaráðherrra, til að stýra Icesave samningaviðræðunum fyrir hönd Íslands heldur en að leita sannarlega að besta og hæfasta fólkinu til þess, út fyrir allar pólitískar flokkslínur?
Af hverju var Icesave samningurinn ekki ræddur á Alþingi áður en skrifað var undir hann?
Maður er bara hættur að hafa trú á þessu fólki.
Á meðan þjóðin þarf að blæða fyrir fífldirfsku Björgólfs og hans manna, heldur hann áfram sínum viðskiptum eins og ekkert sé. Félag í hans eigu ætlar að reisa gagnaver á Suðurnesjum og í svari hans til Illuga kemur fram að hann hafi nóg fyrir stafni að hafa verðmæti út úr sínum eignum.
Hvernig geta menn komist upp með þetta? Af hverju eru eignir hans ekki teknar inn í Icesave-púkkið?
.........í eldhúsinu, settist niður og kom ekkert við sögu í uppvaskinu þann daginn. En hann mun hafa jafnað sig og verður með í uppvaskinu á fullu á morgun.
Þarna er ekkert verið að fara í kring um hlutina, þarna er kúrsinn tekinn.
Við vitum ekki hvað verður í boði fyrr en við setjumst að samningaborðinu. Það er stóri sannleikurinn í þessu. Allar bollaleggingar um hitt og þetta eru tímaeyðsla.
Við fáum síðan að kjósa um afraksturinn, vonandi bara einu sinni. Tvennar kosningar eru bull að mínu mati, við þurfum ekki að ákveða í einum kosningum hvort við eigum að ganga til þessara viðræðna og gefa þannig kost á ýmsum hræðsluáróðri í hvora áttina sem er.
Á endanum er það síðan þjóðin sem fær þetta í hendurnar.
Er það ekki þannig sem við viljum hafa það?
Þetta er líklega ekki í fyrsta skiptið sem Eyjamenn lenda í þessu. Þar hefur Björn Einarsson verið að byggja upp eftirtektarvert starf og ÍBV er komið í hóp sterkustu yngriflokkaliða landsins. Það er afar svekkjandi að vera búin að undirbúa mót og gera allt klárt þegar meldingin kemur frá hinum liðunum að þau komist ekki.
Því miður er þetta svona víðar líka. KFÍ hefur oft lent í þessu sérstaklega á vorin og núna í vikunni kom það í ljós að Valsmenn gáfu leik sinn í unglingaflokki. Félög virðast sjá sér einfaldlega hag í því að spara ferðakostnað í síðasta leik, sem skiptir kannski engu máli. Þau fá síðan litla fjársekt hjá KKÍ sem er mun lægri en sem nemur ferðakostnaðinum.
Við hér á Tindastól lentum í messufalli um daginn hjá minnibolta stúlkna. Þá var búið að gera allt klárt fyrir mót hér á Króknum, en öll þátttökuliðin melduðu sig út og gríðarlega sárindi meðal heimastúlkna.
Stór ástæða fyrir þessu er sú að þessi svokölluðu vormót KKÍ, sem leikin eru í öllum riðlum nema A-riðli, þar sem Íslandsmótsumferð fer fram, eru ekki alvöru mót sem telja í Íslandsmótinu og því leggja félög og foreldrar minni áherslu á að senda lið í slík mót, sérstaklega þegar um langan veg er að fara. Á ársþingi KKÍ mun liggja fyrir tillaga um að breyta keppnisfyrirkomulaginu í þá veruna að leiknar verði fjórar umferðir í Íslandsmóti í öllum riðlum, ekki bara A-riðli og þá vona ég að þessu skrópi félaga linni.
Því miður held ég að staðan sé þannig hjá okkur, sundurlyndið og traust á milli fólks það lítið að við náum aldrei að stíga sjálf út úr þessum vandamálum. Það er ekki nóg með að við glímum við afleiðingar fjármálakreppunnar og hrun hagkerfisins heldur þurfum við að horfa upp á innanhúsdeilur hjá okkur og það virðist sem ekki sé hægt að setja fókusinn á neinar aðgerðir fyrir fólkið í landinu vegna þess.
Ég held að við verðum á endanum að segja okkur á hreppinn, kalla eftir alvöru utanaðkomandi aðstoð sérfræðinga sem leitt geta okkur út úr þessum kröggum. Stjórnmálamenn fari í frí í 2-3 ár og við látum ekki bara utanþingsstjórn heldur utanlandsstjórn, halda hér um taumana þangað til við komumst upp úr þessu.
Hver dagur sem fer í kjaftæði og þvaður, þýðir mánuð í lengda kreppu í stóru myndinni.