Nú er maður formlega orðinn féhirðir

Já mikið rétt, í dag sóttum við Mundu okkar og fórum með hana í skottinu á bílnum (Patrol jeppa sko, svo að dýraverndunarsinnar missi sig ekki) upp í fjárhús til Erlu þar sem við höfum fengið að hafa gimbrarnar okkar. Erla gaf okkur eina gimbur og hún var umsvifalaust skírð Erla. Þannig að Erla og Munda eru kindurnar okkar. Erla er kollótt og fyrir ykkur latteliðið í Reykjavík þá þýðir það að hún hefur engin horn. Þetta var því ferð til fés í dag og ég er orðinn féhirðir.

Þarna eru þær Munda og Erla í nokkuð stórum hópi kinda og í lokaðri stíu bíður síðan voldugur hrútur eftir jólunum. Og það verða svo sannarlega jól hjá honum. Konan er hörð á því að setja litlu sætu gimbrarnar okkar undir hrútinn stóra og stæðilega. Mér finnst þær nú full ungar í það, en ég hef svo sem lítið vit á þessu. Hlakka þá bara til að fá nokkra lambaskrokka í kistuna að ári.

Í dag festi ég svo grind, sem á kindamáli heitir spil, í stíuna og þannig stækkuðum við stíuna sem gimbrarnar eru í. Alls eru sjö gimbrar í þessari stíu. Mundu var strax tekið all vel, hún var svöng og tók hraustlega til matar síns. Hún hlakkar eflaust til framtíðarinnar og þess fjölbreytta fæðis sem bíður hennar!

Mér sýndist kindurnar hafa það mjög gott þarna. En eins og vinkona mín fyrir vestan sagði, að þá er betra að kindurnar séu jákvæðar, því enginn vill hafa neikvætt eigið fé. Og mér sýnist að við komum til með að vera með jákvætt eigið fé, alla vega á fjórða ársfjórðungi.

Það skal tekið fram að ekki er um áhættufé að ræða eins og fréttir voru af um daginn, en það voru kindur sem klifruðu víst í klettum en það má eiginlega segja að þetta hafi verið lausafé þangað til við komum því í hús í dag.

Nú les ég markaskránna þegar ég fer að sofa á kvöldin. Okkar kindur eru með rifið aftan hægra og slitið framan vinstra. Ég markaði þær sjálfur. Annars er lítið að marka þessa markaskrá og hún setur alls ekki mark sitt á líf mitt í framtíðinni. Hvernig ætli þýsk mörk séu?

Orðasafn að lokum:

Gimbur - kind sem er nýhætt að vera lamb

Stía - verelsi kindanna

Kollótt - kind án horna

Spil - grind sem notuð er til að stúka stíuna af

Mark - einkennismerki sem klippt eru í eyru kindanna

Skot og mark - skýri það síðar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ÖSSI

What....ertu orðinn fjárbóndi???Jahérna ég hefði frekar trúað því að Alli Munda myndi fara að æfa listdans á skautum og myndi síðan fara á ólympíuleika fyrir hönd Íslands í greininni og vinna gullverðlaun...

Svona er nú veröldin í dag...

En gott að þetta er ekki áhættufé..þetta gæti þó endað sem hlutafé...

ÖSSI, 24.10.2008 kl. 16:58

2 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Minnir mann óneitanlega á ykkur hjónin. Lítil gimbur og stór hrútur.

En annars velkomin í hóp okkar bændanna. Við erum búin að eiga tvær rollur í nokkur ár. Kemur sér vel nú á síðustu og vestu og allt það.

Ingólfur H Þorleifsson, 28.10.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælingar um ferða- og dægurmál

Höfundur

Karl Jónsson
Karl Jónsson
Áhugamaður um ferðamál og einn af eigendum Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veturinn er fallegur á Íslandi
  • ...img_9430
  • 20080519083320623
  • Lokahof04_SOA1
  • Lokahof04_SOA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 789

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband