Sunnudagur, 5. janúar 2014
Hugsum um ferðamennina okkar eins og fjölskyldu okkar
Okkur sem störfum í ferðaþjónustunni eru lagðar miklar ábyrgðir á hendur. Það er því afar mikilvægt að við stöndum undir þeirri ábyrgð og sýnum fram á að okkur sé treystandi fyrir því að taka á móti erlendum ferðamönnum, veita þeim þá þjónustu sem þeir kaupa og einnig og ekki síst að huga að velferð þeirra og öryggið. Í áramótaskaupinu var gert létt grín að því að ferðaþjónar væru peningagráðugir og gerðu allt til þess að ná peningum af saklausum ferðamönnum án þess að innistæða væri fyrir því. Ég tók þessu sem góðlátlegu gríni, umræðan hefur verið svolítið á þessum nótum og viðvörunarorð hafa heyrst um að við megum ekki láta græðgina ráða því hvernig við þjónustum ferðamennina. Vissulega eru svartir sauðir í þessari atvinnugrein sem annarri og nær framganga þeirra oft að lita umræðuna meira en sanngjarnt getur talist, gagnvart öllum þeim sem eru að standa sig vel. En við sem störfum í þessum geira vitum að hið minnsta þjónustufall getur skaðað orðspor okkar í besta falli í einhvern tíma og ekki bara okkar eigin rekstur, heldur getur þetta líka sett svartan blett á atvinnugreinina í heild sinni.
Ég hef sjálfur verið afar gagnrýninn á bílaleigur sem hafa verið að leigja erlendum ferðamönnum bíla yfir vetrartímann á dekkjum sem maður myndi nú ekki sjálfur brúka í ferð með eigin fjölskyldu um landið. Ég held að það sé sú viðmiðun sem við eigum að nota, að hvað myndum við bjóða okkur eigin fjölskyldu upp á í ferðalögum um landið? Ég held reyndar að í einhverjum tilfellum sé hreinlega um vanþjálfun starfsmanna í framlínunni að kenna og að í einhverjum tilfellum geti stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja komið í veg fyrir óheppileg atvik, einfaldlega með því að undirbúa sitt starfsfólk betur. Upplýsingagjöf er gríðarlega mikilvæg þegar kemur að þessum snertiflötum sem við höfum við ferðamennina.
Það er mikilvægt að við gefum okkur tíma til að spjalla aðeins við gesti okkar og grennslast fyrir um þeirra áætlanir, sérstaklega yfir vetrartímann. Þeir geta haft allt aðrar upplýsingar um ástand vega og veður heldur en við og því er afar mikilvægt að við gætum þess að uppfæra allar slíkar upplýsingar með viðkomandi áður en hann leggur út í daginn. Aðgengi að upplýsingum um færð og veður er með þeim hætti í dag að við eigum auðvelt með að nálgast nýjustu upplýsingar hverju sinni. Það er hægt að prenta þær út af netinu, hægt að sýna viðkomandi það á tölvuskjánum og upplýsa í orðum um stöðu mála. Ráðleggingar hvað þetta varðar eru gríðarlega mikilvægar og er tekið með þökkum af viðkomandi. Vefir eins og safetravel.is eru gagnlegir, sömuleiðis vefir Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands.
Það er líka einn punktur sem ég vil koma á framfæri og það út af fréttum um daginn að ferðamenn sem bjargað var fyrir vestan, hafi stungið af frá ógreiddum reikningi. Ég hallast að því að þar sé ekki um krimmahátt að ræða, heldur hugsunarleysi og að fólkið hafi ekki áttað sig á aðstæðunum. Vissulega gerði annað parið það og fór til baka og greiddi sinn reikning og er það vel. En við skulum ekki dæma fólk sem glæpamenn þegar svona kemur upp, frekar hugsunarleysi held ég. En svo er það önnur saga og hver og einn verður að spyrja sig að því, myndi maður rukka yfir höfuð fyrir ferðamenn á hrakhólum sem bjargað er með þessum hætti og þá hvað mikið?
En við skulum sýna sameiginlega ábyrgð í öryggismálum ferðamanna okkar, gætum þess að þeir hafi alltaf uppfærðar upplýsingar um færð og veður og í guðanna bænum, ekki leigja þeim bíla sem illa eru búnir til vetraraksturs! Gefum okkur tíma til að skanna veður og færð og miðla þeim upplýsingum áfram. Ferðamenn kunna að meta það þegar við sýnum þeim athygli og þegar þeir finna að við berum hag þeirra fyrir brjósti.
Um bloggið
Pælingar um ferða- og dægurmál
Tenglar
Ferðamál
Síður sem fjalla um ferðamál.
Bloggvinir
- Björgvin
- Björn Jóhann Björnsson
- Brynjar og Gurrý!
- Dunni
- Einar Bragi Bragason.
- Erla Einarsdóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Gísli Torfi
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Heiðrún Björk Jóhannsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Rúnar Birgir Gíslason
- Sigurður Árnason
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Snorri Örn Arnaldsson
- Sólmundur Friðriksson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- ÖSSI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.