Mánudagur, 13. janúar 2014
Á Ísland að vera bara áfangastaður fyrir efnameiri ferðamenn?
Þeirri skoðun skýtur alltaf annað slagið upp í umræðunni um fjölda ferðamanna til Íslands og þolmörkin þar, að við eigum að fókusera meira á efnameiri ferðamenn, fá hingað færri ferðamenn en ferðamenn sem borga meira. Út frá hagfræðilegu sjónarmiði er þetta eflaust afar skynsamlegt. Upp myndu byggjst stór og sterk ferðaþjónustufyrirtæki, færra starfsfólk yrði í greininni, færri frumkvöðlar, en vissulega hægt að greiða hærri laun. En hvernig verður landslagið í ferðaþjónustunni ef af þessu yrði nú?
Sæjum við þá ekki tiltölulega fá ferðaþjónustufyrirtæki en gríðarlega stór? Myndi ekki sjarminn af litlu sveitaferðaþjónustunni sem dæmi, minnka til muna? Er það það sem við viljum?
Ekki ég í það minnsta. Sjarminn við ferðaþjónustuna í dag er einmitt sú staðreynd að mikið er af litlum, kósý gistimöguleikum út um allt land þar sem ferðamenn eru í mikilli nánd við þá sem reka staðina. Persónuleg tengsl verða meiri sem gerir ferðina mun ríkulegri fyrir ferðamanninn þegar þeir heimsækja sveitagistinguna, heldur en stóru hótelin.
Afþreyingarmöguleikarnir yrðu á fárra færi fjárhagslega og hér yrði aðeins um lúxusgistiþjónustu að ræða myndu þessar hugmyndir ná fram að ganga.
Sumir segja að ferðaþjónustan í dag sé svipuð því sem var í sjávarútvegi á Íslandi fyrir 30-40 árum, mikið af litlum fjölskyldufyrirtækjum og þróunin verði sú saman, að fá en gríðarlega stór fyrirtæki verði á endanum í þessum ferðamannabrannsa. Ég er ósammála því, því ég veit og það er mín trú, að megnið af þeim ferðamönnum sem hingað kemur, er að leita eftir tengingu við náttúruna og persónulegum tengslum við Íslendinga sjálfa, það hef ég frá eigin reynslu í mínu fyrirtæki.
Eflaust mun þessi skoðun skjóta upp kollinum af og til og hún mun áfram vera "sexy" í augum hagfræðinga, en styrkleiki okkar ferðaþjónustu í dag felst í fjölbreytninni í því að taka á móti ferðamönnum og mæta þeirra þörfum varðandi efnahag og áhugasvið.
Höldum því áfram takk fyrir.
Um bloggið
Pælingar um ferða- og dægurmál
Tenglar
Ferðamál
Síður sem fjalla um ferðamál.
Bloggvinir
- Björgvin
- Björn Jóhann Björnsson
- Brynjar og Gurrý!
- Dunni
- Einar Bragi Bragason.
- Erla Einarsdóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Gísli Torfi
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Heiðrún Björk Jóhannsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Rúnar Birgir Gíslason
- Sigurður Árnason
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Snorri Örn Arnaldsson
- Sólmundur Friðriksson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- ÖSSI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég vil helst ekki stefna í að fá aðeins "ríka fólkið" hingað. Það vill upplifa margt á sem stysta tíma, afþreying er gjarnan á þann hátt að það kostar mikið af tólum og tækjum, þannig að álagið á okkar land af hverjum af þessum ferðamönnum verður margfalt meira en af þeim sem eru hóflegir, t. d. bakpokagenginu svonefndu. Allir sem koma hingað skila eitthvað eftir og taka eitthvað með sér. Og þeir sem fara héðan ánægðir og fullt af jákvæðum upplifunum eru besta auglýsing og munu draga hingað fleiri ferðamenn seinna. Okkar "infrastrúktúr" er þannig að litil þjónustfyrirtæki henta okkur best, eru mest atvinnuskapandi og væntanlega einnig vistvænna en stórfyrirtæki sme horfa á stórgróða á stuttum tíma.
Úrsúla Jünemann, 13.1.2014 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.