Allir komnir á sinn stað

Jæja nú eru allir komnir á sinn stað fyrir hátíðarnar.

Við erum búin að bera út börn síðan í fyrradag. Fórum norður á miðvikudaginn var. Helsti tilgangurinn var að fara með Hauk á flug suður og með Árdísi og Skírni til pabba síns. Á leiðinni fengum við þær upplýsingar að búið væri að aflýsa öllu flugi og ekki gott útlit með flug daginn eftir heldur. Þetta varð og til þess að pabbi Árdísar og Skírnis komst ekki norður, en hann var að koma frá London. Það varð úr að þau fóru til afa síns og ömmu og Haukur aftur með okkur til baka á Krókinn þar sem hann var nú kominn með hita og að verða lasinn. Ég skutlaði honum síðan í veg fyrir mömmu sína í Brú, en hún var á leið vestur til Bolungarvíkur þar sem þau verða yfir jólin. Þetta er aðeins lítið dæmi um hvað þetta getur nú allt verið snúið í þessari samsettu fjölskyldu. En það þýðir ekkert annað en að taka á þessum málum bara með bros á vör.

Erum sem sagt orðin ein í kotinu og verðum þangað til 28. des. Við fáum því kærkomna hvíld því við fundum það í gær að við erum orðin mjög langþreytt eftir at síðustu vikna og mánaða. Það eru ekki nema tveir og hálfur mánuður síðan við ákváðum að flytja hingað á Krókinn og sá tími hefur liðið hratt og á meðan höfum við safnað upp þreytu. Það er kannski ekki besti tími í heimi að flytja rétt fyrir jólin þar sem jólaundirbúningurinn hefur þurft að haldast í hendur við þá vinnu að koma sér fyrir í húsinu. En þetta hefur allt saman tekist með vinnu og því ekkert skrýtið að við séum orðin ansi þreytt. Ekki taka það því illa upp ef við svörum ekki í síma, við gætum hreinlega hafa gleymt að taka hann með okkur í lazy-boyinn og þá getur verið erfitt að standa upp aftur. Svo er bara að muna að taka fjarstýringarnar með þangað líkaWink

Naumast flóðin út um allt. Eylendið hér í Skagafirðinum eins og fjörður á að líta og þeir hafa verið duglegir að bjarga hrossunum sem þar voru í vandræðum. Því ef hestum er ekki bjargað úr vandræðum í Skagafirði, hvar þá spyr ég?

Jæja nú er perrinn í Byrginu kominn í vond mál. Sá viðtal við stúlku í gær sem hafði lent í honum og fermingarbróðurnum. Sá hefur ruglað í hausnum á þessum greyjum. Þessi stúlka var alveg ótrúlega kúl í þessu viðtali og ég tek ofan fyrir henni fyrir að leggja í að lýsa þessu nánast í smáatriðum. Einu hjó ég þó sérstaklega eftir en hún sagði að konan hans, hefði sagt henni að hann hefði sagt svona við aðrar stúlkur í meðferðinni einnig. Hvernig á maður að túlka þetta? Að hún hafi verið að kóa með honum og hafi vitað af þessu? Skrýtið mál og málsvörn hans fokin út í veður og vind. Ásakanir um falsanir, burð eiturlyfja á viðmælendur Kompáss voru uppspuni og lygi manns sem var að reyna að halda andlitinu. Trúlega hefur hann haldið að þessar stúlkur sem hann misnotaði þyrðu ekki að koma fram og leggja fram kærur.

Ég vil skipta á Jóni Baldvin og Ingibjörgu Sólrúnu. Ég vil að Jón Baldvin verði aftur foringi jafnaðarmanna á Íslandi. Ekki yrði ég í vafa í næstu kosningum hvað ég ætti að kjósa ef það væri staðan. Ég er meira að segja á þeirri skoðun að Össur sé mun betri kostur en Ingibjörg og mér finnst hann vera allur að færast í aukana og er það vel. Kannski hjólar hann í svilkonu sína á næsta þingi Samfylkingarinnar? Veit ekki, en kerlingar greyjið er alveg handónýtur leiðtogi að mínu mati og þetta útspil hennar varðandi umhverfismálin, að smíða þessa fínu umhverfisstefnu Samfylkingarinnar án allrar umræðu og aðkomu grasrótarinnar er mikill afleikur. Ber keiminn af umhverfistefnu 101 Reykjavík, án alls tillits til þess fólks úti á landi sem þarf lausnir í sínum atvinnumálum og það fyrr en seinna.

Annars verð ég að hrósa Ágústi Ólafi þingmanni og varaformanni Samfylkingarinnar, mér finnst hann vera að taka á ýmsum góðum málum og leggja þeim lið. Efnilegur strákur sem ég hef mikla trú á í framtíðinni.

En nóg um það. Framundan er stjórnarfundur í Gagnaveitu Skagafjarðar, mikið að gerast þar og spennandi verkefni framunda.

Hilsen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælingar um ferða- og dægurmál

Höfundur

Karl Jónsson
Karl Jónsson
Áhugamaður um ferðamál og einn af eigendum Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Veturinn er fallegur á Íslandi
  • ...img_9430
  • 20080519083320623
  • Lokahof04_SOA1
  • Lokahof04_SOA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband