Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Fróðlegur fyrirlestur á Hólum
Ég var á fyrirlestri í gær á Hólum í Hjaltadal þar sem Hjörtur Smárason markaðsgúrú kynnti hið nýja vefsamfélag sem kallað hefur verið Web 2.0 og fjallaði um hvernig fólk getur nýtt sér það til markaðssetningar. Hjörtur rekur eigið markaðsráðgjafarfyrirtæki Scope. Hann heldur einnig úti bloggsíðu og skrifar pistla í viðskiptablaðið um markaðsmál.
Þetta var mjög áhugaverður fyrirlestur og þarna dró hann saman í raun það sem maður vissi en gat kannski ekki útskýrt í þaula. Í stuttu máli má segja að Web 2.0 sé samheiti yfir vefi sem byggja á efni sem notendur sjálfir setja inn. Annað sem einkennandi er fyrir þessa nýju kynslóð vefja er gagnvirkni. Bloggsíður eru gott dæmi um hvort tveggja, bloggarinn setur inn efni sem síðan aðrir geta gert athugasemdir við.
Hjörtur fór yfir það hvernig fólk getur nýtt sér þessa vefi til markaðssetningar bæði með heimasíðum og með tölvupósti. Það er nefnilega ekki sama hvernig þetta er gert.
Mjög fróðlegur fyrirlestur eins og áður segir og opnaði þessa hluti afskaplega vel fyrir mér. Skora á ykkur að lesa það sem Hjörtur skrifar, sérstaklega ykkur sem haldið úti vefjum um ferðamál en hann sagði það fullum fetum að gæði vefja um ferðamál á Íslandi væru ekki mikil.
Um bloggið
Pælingar um ferða- og dægurmál
Tenglar
Ferðamál
Síður sem fjalla um ferðamál.
Bloggvinir
- Björgvin
- Björn Jóhann Björnsson
- Brynjar og Gurrý!
- Dunni
- Einar Bragi Bragason.
- Erla Einarsdóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Gísli Torfi
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Heiðrún Björk Jóhannsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Rúnar Birgir Gíslason
- Sigurður Árnason
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Snorri Örn Arnaldsson
- Sólmundur Friðriksson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- ÖSSI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Synd að hafa neyðst til að yfirgefa svæðið í miðju kafi; náði ekki nema bara fyrri helmingnum af þessu áhugaverða efni. Það er eins og þú segir, margt af þessu vissi maður og hafði upplifað, við sem höfum verið nettengdir frá því að það var fyrst hægt, en gott að fá þetta svona uppsúmmerað til að geta fókusað betur á lykilatriðin í þessu. Er að reyna að finna einhvern sem tók niður glósur í seinnihluta fyrirlestursins - væri til í að skipta á því og ýtarlegum glósum úr fyrrihluta :)
Jón Þór Bjarnason, 31.1.2007 kl. 10:42
Sæll Jón Þór, ég glósaði eitthvað niður, sendu mér netfangið þitt svo ég geti sent þær til þín.
Karl Jónsson, 31.1.2007 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.