Stórkostlegur sigur!

Það er ekkert flóknara en það að leikur íslenska landsliðsins í körfuknattleik í gærkvöldi er ein albesta frammistaða landsliðsins í háa herrans tíð og að sigra þetta gríðarsterka lið frá Georgíu er mikið afrek.

Lokamínútan sýnir enn einu sinni hvað margt getur gerst á stuttum tíma í körfubolta. 3 stig undir þegar 5 sekúndur eru eftir og vinna með einu, segir allt sem segja þarf.

Ég vil hrósa RUV fyrir að senda leikinn beint út á netinu. Körfuknattleikshreyfingin hér á Íslandi hefur verið í fararbroddi íþróttagreina við nýtingu netsins í sínu starfi. Á síðustu árum hafa félagslið tekið upp þann sið að senda heimaleiki sinna liða beint út á netinu og er það hreint frábær nýjung. Að RUV skuli síðað fylgaj í kjölfarið og senda leikinn út með þessum hætti er hrein snilld. Leikurinn var svo sýndur í heild sinni í lok sjónvarpsdagskrár í gær en þá voru morgunhanar eins og ég farnir að sofa.

Það sem mér fannst einkenna leik íslenska liðsins í gær var gríðarlega sterk liðsheild, agaður leikur og mikil barátta. Lítið var um léleg og ótímabær skot og varnarleikurinn hreint frábær gegn hinum frábæra Zaza Pachulia miðherja Altlanta Hawks í NBA-deildinni. Íslensku tröllin Friðrik Stefáns og Fannar Ólafs - sem braut reyndar tönn í leiknum, komu þessum ljómandi góða leikmanni hvað eftir annað í vandræði og hann skoraði aðeins úr 33% skota sinna í leiknum.

Hetjan sjálf Jakob Sigurðarson átti frábærar lokamínútur og þetta skot verður lengi í minnum haft og ekki síst gríðarleg barátta þeirra Fannars Ólafssonar og Loga Gunnarssonar í aðdraganda þess.

Frábært hjá landsliðinu og við skulum athuga það að í liðið vantaði tvo bestu leikmennina að mínu mati, þá Jón Arnar Stefánsson og Hlyn Bæringsson.

Til hamingju KKÍ! Bendi á skemmtilega umfjöllun á þeirra síðu hér hjá tölfræðtröllinu Óskari Ófeigi.

Til hamingju RÚV fyrir ykkar framlag! Netútsendingin var snilld.

Til hamingju körfuboltafólk á Íslandi!


mbl.is Ævintýraleg sigurkarfa Jakobs tryggði Íslendingum sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Þetta gefur lífinu gildi!

Ólafur Guðmundsson, 30.8.2007 kl. 09:34

2 identicon

Já, já ... lífinu gildi. En þú verður að vera duglegri að blogga! Ekki láta vinnuna trufla þig við bloggið.

Kristján Gísla (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælingar um ferða- og dægurmál

Höfundur

Karl Jónsson
Karl Jónsson
Áhugamaður um ferðamál og einn af eigendum Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veturinn er fallegur á Íslandi
  • ...img_9430
  • 20080519083320623
  • Lokahof04_SOA1
  • Lokahof04_SOA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 765

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband