Mikið andskoti er ég stoltur af honum frænda mínum!!

Stefán Friðrik bróðursonur minn sem stundað hefur nám í Kvikmyndaskóla Íslands, sýndi lokaverkefni sitt ásamt samnemendum sínum á útskriftarhátíð skólans á laugardaginn. Ekki nóg með að hann útskrifaðist drengurinn, heldur sigraði myndin hans í samkeppni útskriftarnema!!

Myndin heitir Yfirborð og fjallar um óvænta atburði á ferðalagi manns í leigubíl áleiðis til Ísafjarðar. Stefán hlaut í verðlaun Bjarkann - þó ekki Bjarka frænda, heldur grip sem veittur er árlega af þessu tilefni.

Engir aukvisar voru í dómnefndinni, Silja Hauksdóttir leikstjóri, Ágúst Guðmundsson leikstjóri, Hlín Jóhannesdóttir, framleiðandi hjá Zik Zak kvikmyndum og Þorsteinn Bjarnason sat sem fulltrúi útskrifaðra nemenda.

Og umsögn dómnefndarinnar ekkert slor heldur: ,,Einföld og góð hugmynd sem kemst fyllilega til skila. Myndleg frásögn, útlit og myndvinnsla í stíl við viðfangsefnið. Hlutverkaskipan og frammistaða leikara ber leikstjóra gott vitni.”

Maður er bara rífandi stoltur af frænda sem ég er viss um að eigi bjarta framtíð í þessu fagi!

Til hamingju Fáni frændi!!

20080519083320623 Þessa ágætu mynd tók Davíð Orri. Smellið á hana og hún stækkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta gamli minn, og takk fyrir stuðninginn í gegnum tíðinna:)

Fáni Frændi (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælingar um ferða- og dægurmál

Höfundur

Karl Jónsson
Karl Jónsson
Áhugamaður um ferðamál og einn af eigendum Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veturinn er fallegur á Íslandi
  • ...img_9430
  • 20080519083320623
  • Lokahof04_SOA1
  • Lokahof04_SOA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 768

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband