Atvinnubótavinna erlendra stúdenta

Væri ekki nær að þeir fengju sér alvöru vinnu, tækju sér hamar eða skóflu í hönd?

Hvar ærlar þetta ágæta fólk að drepa niður fæti núna? Mótmæli þeirra fóru ekki vel í íslensku þjóðarsálina og aðferðir þeirra alls ekki til að afla málstað sínum stuðnings.

Allt í lagi að mótmæla og koma sínu á framfæri, en að trufla almenning í sínu daglega amstri er ekki til þess að fólk fái samúð með málstaðnum.


mbl.is Saving Iceland með aðgerðabúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hefur þú aldrei heyrt um fólk í sumarfríi - hvað með vörubílstjóra - þeirra aðgerðir höfðu miklu meiri áhrif á fólk í sínu daglega amstri en fólk sem fer á álvers og virkjanasvæði.

og er það virkilega þín skoðun að eina vinna sem einhvers virði er að vera að djöflast með skóflu?

ég held reyndar að margir af þessum mótmælendum hafa unnið meiri skólfuvinnu en þú:)

Birgitta Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 09:34

2 Smámynd: Karl Jónsson

Málstaður vörubílstjóra missti líka algjörlega marks um leið og þeir fóru að hafa áhrif á daglegt líf fólks.

Þú veist lítið um mína skófluvinnu í gegn um tíðina, hún hefur verið talsverð ;o)

Karl Jónsson, 7.7.2008 kl. 10:17

3 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Sæll Karl

 Vonandi kemur þessi hópur og tjaldar í "náttúruperlunni" Helguvík fyrir sunnan þar sem Álverið okkar mun rísa.  Stutt að henda þeim sem lögin brjóta í næstu Iceland Express vél og heim...  

Margur mótmælanda saving iceland hefur oftar enn ekki brotið lög og á að vísa þeim hiklaust úr landi.  Það er samt auðvitað réttur þeirra sem mótmæla löglega að gera svo.  Veit samt að lögreglan fyrir sunnan mun taka hart á þeim sem ekki virða lögin.

Tek ekki undir málstað þessara samtaka og aðgerðir þeirra undanfarin sumur hafa verið skammarlegar oftar en ekki.  Ef þetta lið hagar sér er þeim velkomið að mótmæla, t.d með sama hætti og Birgitta og félagar í Rames málinu.  Það eru aðgerðir sem hægt er að virða

Örvar Þór Kristjánsson, 7.7.2008 kl. 11:10

4 identicon

Þú mátt trúa því að það er fullt af fólki innan Saving Iceland sem kann bæði á hamar og skóflu. 

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælingar um ferða- og dægurmál

Höfundur

Karl Jónsson
Karl Jónsson
Áhugamaður um ferðamál og einn af eigendum Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veturinn er fallegur á Íslandi
  • ...img_9430
  • 20080519083320623
  • Lokahof04_SOA1
  • Lokahof04_SOA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 776

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband